| Jólatré |
| sunnudagur, 29 nóvember 2009 | |
|
Í síðustu viku hafa skógarbændur verið að höggva og leggja inn jólatré til Barra hf. Um er að ræða stafafuru 1,2 til 2,5 metrar á hæð. Búið er að selja suður 350 tré sem afhentar verða afhentar í vikunni.
Unnið er að undirbúningi "Jólakattarins" jólamarkaðar sem Barri hf, Félag skógarbænda á Austurlandi, Skógrækt ríkisins á Hallormsstað ásamt Héraðs- og Austurlandsskógum. Markaðurinn verður haldinn laugardaginn 12. desember n.k. í Gróðurhúsi 1 á Valgerðarstöðum 4 við Fellabæ. |