| Námskeiđ í líkanagerđ til ađ meta vindálag |
| fimmtudagur, 01 október 2009 | |
|
Í dag 1. október var haldið námskeið í gerð líkana til að meta vindálag. Hugmyndin vaknaði eftir vangaveltur Hlyns og Benna hjá Héraðsskógum og Erlu hjá Barra hf fyrir nokkrum vikum. Rúmlega 20 tóku þátt og eða fylgdust með. Þarna voru búin til módel af byggingum á Valgerðarstöðum og Rauðholti í Hjaltastaðaþinghá. Búin var til renna sem líkönin voru sett í og síðan notuð kolsýra og heitt vatn til að framkalla sýnilegan vind. Sjá má nánar um svona líkön með því að skoða stutt video á heradsskogar.is
|