|
fimmtudagur, 04 október 2007 |
Þessa dagana er verið að steypa undirstöður undir frystigeymsluna á Valgerðarstöðum og ganga frá grunninum. Eftir helgi verður hafist handa við að reisa húsið, en áætlanir gera ráð fyrir að geymslan verði tilbúin til notkunar um miðjan nóvember. Bygging aðstöðuhúss er nokkuð á eftir upphaflegum áætlunum, en verið er að steypa einingarnar hjá Malarvinnslunni.
|
|
|
fimmtudagur, 27 september 2007 |
|
Sjónvarpið sýndi í gær skemmtilega frétt eins og sjá má hér
|
|
|
Fyrstu plönturnar afhentar |
|
|
|
|
mánudagur, 10 september 2007 |
|
Í dag voru afhentar fyrstu plönturnar sem ræktaðar eru á Valgerðarstöðum.
Alls voru afhentar 10.050 lerkiplöntur sem gróðursettar verða í landi Snjóholts á Héraði.
Nýr framkvæmdastjóri Héraðs- og Austurlandsskóga, Ólöf Inga Sigurbjartsdóttir, tók við fyrsta bakkanum úr hendi Björns Ármanns, stjórnarformanns Barra.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
laugardagur, 08 september 2007 |
|
Margir hafa lagt leið sína í nýju gróðurhúsin á undanförnum vikum. Má þar nefna Landbúnaðar- og sjávarútvegsnefnd Alþingis og tvo hópa norskra skógræktarmanna. Það er mjög ánægjulegt að finna fyrir þeim áhuga sem menn sýna þessari uppbyggingu og verða vitni að undrun manna yfir þeirri fullkomnu tækni sem í notkun er í nýju húsunum.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 31 - 39 af 63 |