|
Unnið á fullum krafti á Valgerðarstöðum |
|
|
|
|
miðvikudagur, 06 febrúar 2008 |
|
Þessa dagana er verið að flokka, pakka, setja plöntur inn á kæli- og frystigeymslu. Þá er verið að flytja út á plan þær plöntur sem geyma á úti það sem eftir lifir vetrar. Þá eru starfsmenn Barra hf á Tumastöðum að pakka birki í pappakassa sem frysta á og afhenda Hekluskógum í vor.
Aðstöðuhúsið er fokhelt og unnið innandyra við veggi, pípu- og raflagnir, frágang lofta og múrarar væntalegir til að flota gólfin. Það er stefnt á að halda aðalfund í kaffistofunni 8. mars næst komandi, því verður að halda vel á ef það á að takast.
Einnig er unnið við að reisa vetrarskýli fyrir þær plöntur sem ekki verða geymdar á kæli eða frysti en við teljum að þoli síður að vera lítt varðar á útiplani. Hvert skýli rúmar um 1800 bakka og eru lyftarageng.
|
|
|
mánudagur, 14 janúar 2008 |
|
Nú er lokið við pökkun á þeim plöntum sem á að frysta úr gróðurhúsinu við Kaupvang eða rúmlega 300 þúsund plöntur. Frystiklefinn og búnaðurinn í honum virkar framar væntingum.
30 desember sl gekk mikið hvassviðri yfir landið og fóru tvær plötur alveg af húsunum á Valgerðarstöðum og ein rifnaði að hluta. Þá fóru tíu aðrar plötur úr skorðum sínum. Einnig gekk hurð á stafni inn og opnaðist inn í hús 2 sem leiddi trúlega til að plata á 14 bili fór af húsinu. Þá fór ein plata af gróðurhúsinu við Kaupvang.
Myndin er frá því þegar starfsmenn Héraðsfjarðar ehf unnu að lagfæringum á Gróðurhúsi 2
Nú er verið að ljúka endanlegum frágangi á Frystigeymsluhúsinu. Búið að ljúka tveimur af fimm vetrargeymsluskýlum. Malarvinnslan hf hefur lokið steypuvinnu við Aðstöðuhúsið og eru starfsmenn Héraðsfjarðar ehf að hefju vinnu við setja þak á húsið.
|
|
|
mánudagur, 24 desember 2007 |
|
Þessi mynd var tekin yfir Valgerðarstaði í morgun. Það er búið að reisa allar steypueingingar og það tókst síðast liðinn föstudag að steypa gólf á efri hæð Aðstöðuhússins. Það verður fyrsta verkefni á nýju ári að setja þak á húsið og ljúka við ísetningu glugga og hurða.
Það eru komnar 260 þúsund plöntur á frystinn og gengur pökkunin vel.
Framkvæmdastjóri og stjórn senda starfsfólki, viðskiftavinum og öllum þeim fjölmörgu sem komið hafa að uppbyggingu fyrirtækisins á Valgerðarstöðum bestu óskir um gleðileg jól og þakkir fyrir árið sem er að líða.
|
|
|
Jólamarkaðsdagur "jólakattarins" |
|
|
|
|
miðvikudagur, 19 desember 2007 |
|
Síðast liðinn sunnudag var haldinn jólamarkaðsdagur jólakattarins sem var samstarfsverkefni fjögurra aðila þ.e.a.s. Barra hf, Félags skógarbænda, Héraðsskóga og Skógræktar ríkisins á Hallormsstað. Auk jólatrjáa- og greinasölu voru ýmsar uppákomur og fjölmargir buðu margs konar varning til sölu. Þá var keppni verkun hangikjöts og varð Friðjón Þórarinsson á Flúðum í Hróarstungu "Kjötkrókur Austurlands". Verðlaun fyrir fallegasta útskorna laufabrauðið fóru í Ekru í Hjaltastaðaþinghá.
Talið er að á milli 600 til 800 manns hafi komið við í gróðurhúsinu við Kaupvang 19.
Jólatrjáasalan verður opin frá kl 13:00 til 17:00 fram á þorláksmessu. Á boðstólunum eru tegundir jólatrjáa frá átta framleiðendum á Fljótsdalshéraði. Einnig eru til sölu ýmsar tegundir af greinum, skreytingaefni og munum.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 21 - 29 af 63 |