Innskrá
 
Barri hf,
Valgerðarstöðum 4, 701 Egilsstöðum

Sími: 471-2371 - Fax: 471-2376
Gsm: 899-4371 - Netfang: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Hausttilboð á skógarplöntum !

Verðskrá

Barri hf,
Tumastöðum, Fljótshlíð, 
861 Hvolsvöllur
Sími: 481-3171
Gsm 664-4099    Netfang: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Fréttir af aðalfundi Barra hf 22. janúar 2009 PDF Prenta Rafpóstur
mánudagur, 02 febrúar 2009

Aðalfundur Barra hf

Aðalfundur Barra hf var haldinn 22. janúar sl. í kaffistofu félagsins á
Valgerðarstöðum 4 í Fellum. 

Árið hefur verið að mörgu leiti sérstakt og erfitt hvað rekstur varðar. Verið var að
ljúka flutningi megin starfsstöðvar fyrirtækisins og í lok rekstrarársins verður
efnahagshrunið í landinu.
Félagið var rekið með rúmlega 142 milljóna króna tapi sem skýrist af rúmlega 163
milljón króna fjármagnsgjöldum vegna falls krónunar, en fjárfestingalán Barra hf eru í
svissneskum frönkum og japönskum jenum. Eiginfjárstaða fyrirtækisins hefur fallið úr 61,8% niður í 12,63% af þessum sökum.
fundur2.jpgAukning tekna af plöntusölu var 39% á milli ára en aukning framleiðslukostnaðar
varð 35%. Breytingin er tilkomin vegna framleiðsluaukningar sem aftur kallar á
fjárbindingu í birgðum vegna eðli framleiðslunnar.
Samþykkt var á aðalfundinum að auka hlutafé úr rúmlega 54 milljónum í 80 milljónir
til að styrkja lausafjárstöðu og til að standast efnahagssveifluna í landinu.

Ræktun fór fram á Valgerðarstöðum í Fellum, Hallormsstað og Tumastöðum í
Fljótshlíð. Sáð var fræi og stungið stikklingum í rúmlega 85 þúsund bakka eða í
rúmlega 3,7 milljón hólf.

Heildarafhending rekstrarársins 2008  varð rúmlega 2,8 milljón plöntur sem er
aukning um 426 þúsund plöntur frá síðasta ári.

Á launaskrá komu 42 starfsmenn en á þessum tíma eru 11 starfsmenn fastráðnir á
Valgerðarstöðum og tveir starfa á Tumastöðum í Fljótshlíð.

Í aðalstjórn voru kjörin Björn Ármann Ólafsson, Helgi Bragason, Helgi Gíslason,
Þórunn Hálfdanardóttir og Jón Júlíusson.

Framkvæmdastjóri er Skúli Björnsson

 
Aðalfundur Barra hf vegna 2008 PDF Prenta Rafpóstur
sunnudagur, 11 janúar 2009

Fundarboð til hluthafa

Aðalfundur Barra hf fyrir rekstrarárið 2008 verður haldinn á Valgerðarstöðum 4 fimmtudaginn 22. janúar 2009  kl 20:00.

Tillögur frá stjórn,  breytingartillögur á samþykktum félagsins
4. grein um að auka hlutafé í kr 80 milljónir.
Ársreikningur og skýrsla endurskoðenda liggur frammi til skoðunar  á skrifstofu félagsins  frá og með 14. janúar 2009.

   Dagskrá aðalfundar Barra hf  fyrir árið 2008  

1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið starfsár.

2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar.
Kynning á fjárhagsáætlun 2009.

3. Tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.

4. Breytingar á samþykktum félagsins.

5. Kosning stjórnar.

6. Kosning endurskoðenda.

7. Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og varastjórnar.

8. Önnur mál.

 

Fyrir hönd stjórnar
Skúli Björnsson framkvæmdastjóri
   Barri hf

 
Jólakveðja PDF Prenta Rafpóstur
mánudagur, 22 desember 2008
glampi1.jpg
 
Jólakötturinn jólamarkaður PDF Prenta Rafpóstur
þriðjudagur, 16 desember 2008

markadur.JPGJólakötturinn - jólamarkaður er samstarfsverkefni Barra hf, Félags skógarbænda á Héraði, Skógræktarinnar á Hallormsstað og Héraðs- og Austurlandsskóga. Þetta er þriðja árið sem efnt er til dagsins.

Markaðurinn var að þessu sinni haldinn í öðru Gróðurhúsinu á Valgerðarstöðum. Seld voru jólatré frá tíu skógræktendum á Héraði.  Þá mættu yfir tuttugu söluaðilar sem seldu m.a. garðávexti, fiskafurðir, hangikjöt, geisladiska, fjölbreytilega handverks og listmuni, kakó, vöfflur og margt fleira. Þá var boðið upp á rússasúpu, keppt um kjötkrók Austurlands sem reyndist vera Friðjón Þórarinsson Flúðum. Veitt voru verðlaun fyrir laufabrauðsútskurð sem Sigþrúður Sigurðardóttir Brennistöðum hlaut. Þá söng jólakór undir stjórn Magnúsar Magnúsarsonar nokkur lög, Eríkur Sigfússon spilaði á harmoniku og skógarpúkarnir Pjakkur og Petra sungu og töluðu við gesti af og til allan daginn.

Aðsóknin var fram úr björtustu vonum og heimsóttu  svæði eitthvað á annað þúsund manns í köldu og björtu veðri.

Myndir frá markaðnum má sjá í myndasafninu Valgerðarstaðir - Jólamarkaður 2008

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>

Úrslit 11 - 19 af 63
Heimsóknir í dag: 20
Heimsóknir alls: 27541

Viðburðir

September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
Week 35 1 2 3 4
Week 36 5 6 7 8 9 10 11
Week 37 12 13 14 15 16 17 18
Week 38 19 20 21 22 23 24 25
Week 39 26 27 28 29 30

Næstu viðburðir

Það eru engir viðburðir skráðir.
Birta dagatal

Myndir


 

 

 

 

Fréttaveita