|
Fundarboð til hluthafa
Aðalfundur Barra hf fyrir rekstrarárið 2008 verður haldinn á Valgerðarstöðum 4 fimmtudaginn 22. janúar 2009 kl 20:00.
Tillögur frá stjórn, breytingartillögur á samþykktum félagsins
4. grein um að auka hlutafé í kr 80 milljónir.
Ársreikningur og skýrsla endurskoðenda liggur frammi til skoðunar á skrifstofu félagsins frá og með 14. janúar 2009.
Dagskrá aðalfundar Barra hf fyrir árið 2008
1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins síðastliðið starfsár.
2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðenda lagður fram til staðfestingar.
Kynning á fjárhagsáætlun 2009.
3. Tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu.
4. Breytingar á samþykktum félagsins.
5. Kosning stjórnar.
6. Kosning endurskoðenda.
7. Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna og varastjórnar.
8. Önnur mál.
Fyrir hönd stjórnar
Skúli Björnsson framkvæmdastjóri
Barri hf
|