|
Jólakötturinn jólamarkaður |
|
|
|
|
þriðjudagur, 16 desember 2008 |
|
Jólakötturinn - jólamarkaður er samstarfsverkefni Barra hf, Félags skógarbænda á Héraði, Skógræktarinnar á Hallormsstað og Héraðs- og Austurlandsskóga. Þetta er þriðja árið sem efnt er til dagsins.
Markaðurinn var að þessu sinni haldinn í öðru Gróðurhúsinu á Valgerðarstöðum. Seld voru jólatré frá tíu skógræktendum á Héraði. Þá mættu yfir tuttugu söluaðilar sem seldu m.a. garðávexti, fiskafurðir, hangikjöt, geisladiska, fjölbreytilega handverks og listmuni, kakó, vöfflur og margt fleira. Þá var boðið upp á rússasúpu, keppt um kjötkrók Austurlands sem reyndist vera Friðjón Þórarinsson Flúðum. Veitt voru verðlaun fyrir laufabrauðsútskurð sem Sigþrúður Sigurðardóttir Brennistöðum hlaut. Þá söng jólakór undir stjórn Magnúsar Magnúsarsonar nokkur lög, Eríkur Sigfússon spilaði á harmoniku og skógarpúkarnir Pjakkur og Petra sungu og töluðu við gesti af og til allan daginn.
Aðsóknin var fram úr björtustu vonum og heimsóttu svæði eitthvað á annað þúsund manns í köldu og björtu veðri.
Myndir frá markaðnum má sjá í myndasafninu Valgerðarstaðir - Jólamarkaður 2008
|