|
Valgerðarstaðir - nýja stöðin
Byggð hefur verið upp ný og fullkomin gróðrarstöð á Valgerðarstöðum í Fellum.
Tvö gróðurhús sem eru 4100 m2 að gólffleti. Húsin eru búin hita- og kælikerfi, loftunar, raka-og birtustýringum auk vökvunar- og áburðarkerfi af fullkomnustu gerð.
Frystigeymsla er 575 m2 sem í er 4000 m3 frysti- og kæliklefar.
Í frystiklefa er rekkakerfi sem rúma 1,5 til 3 milljónir plantna eftir bakkagerðum. Plöntum er pakkað í pappakassa sem rúma innihald úr tveimur fjölpottum. Pappakassa er hægt að sejtja í mjaðmabelti og eru þeir með rifbandi þannig að hægt er að planta beint úr þeim.Í kæligeymslu er hægt að geyma 15-20 þúsund fjölpottabakka með plöntum til framhaldsræktunar. Í Aðstöðuhúsi er stórt vinnslurými, starfsmannaaðstaða, skrifstofur og rannsóknarstofa.Útiræktunarsvæði verða þrjú samtals 7000 m2.
Tumastaðir
Tumastaðir voru upphaflega gróðrarstöð í eigu Skógræktar ríkisins, byggð 1944. Þar var þá land skóglaust með öllu. Meðal fyrstu verka var að gróðursetja sitkagrenilund í brekkuna; þann fyrsta á Íslandi sem í voru fleiri en örfá tré. Hefur hann síðan gengið undir nafninu ,,Lýðveldislundurinn”. Það er þess virði að heimsækja Tumastaði og sjá hvernig hægt er að umbreyta rýru beitilandi í stórvaxinn, fjölbreyttan skóg með opnum svæðum. Hér er trjásafn með fjölmörgum trjátegundum og gott aðgengi með stígum og slóðum.
Í byrjun árs 2007 tók Barri hf. á leigu Gróðrarstöð Skógræktar ríkisins á Tumastöðum í Fljótshlíð. Á Tumastöðum verða til sölu flestar tegundir skógarplantna sem eru ræktaðar hjá fyrirtækinu. Þar verður ræktun í smærri pottum af ýmsum trjátegundum auk stikklinga- og birkiræktunar í fjölpottum. Ræktun plantna fyrir viðskiptavini á Suðurlandi er meginverkefni stöðvarinnar.
Egilsstaðir - Kaupvangur 19
Gróðurhús Barra á Egilsstöðum sem var byggt árið 1990 og þar hófst starfssemi fyrirtækisins.
Húsið er byggt úr límtrésbogum frá Flúðum og klætt tvöföldum plastplötum. Það er 100 metra langt og 20 metra breitt, eða alls 2000 fermetrar að stærð. Auk þess eru á lóðinni útiræktunarsvæði með vökvunarbómum, geymslusvæði og starfsmannaaðstaða og skrifstofa.
Starfsemi á þessum stað heyrir nú sögunni til og hefur gróðurhúsi verið rifið og flutt burtu. Skipulagi svæðisins hefur verið breytt úr iðnaðarsvæði i íbúðarsvæði.
|