Innskrá
 
Barri hf,
Valgerðarstöðum 4, 701 Egilsstöðum

Sími: 471-2371 - Fax: 471-2376
Gsm: 899-4371 - Netfang: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Hausttilboð á skógarplöntum !

Verðskrá

Barri hf,
Tumastöðum, Fljótshlíð, 
861 Hvolsvöllur
Sími: 481-3171
Gsm 664-4099    Netfang: Þetta netfang er varið fyrir ruslrafpósti, þú þarft að hafa Javascript virkt til að skoða það

Saga PDF Prenta Rafpóstur
þriðjudagur, 22 maí 2007
Hlutafélagið Barri h.f. er stofnað 29. september 1990 á sama tíma og Héraðsskógaverkefninu var hleypt af stokkunum. Nauðsynlegt var talið að byggja upp eina öfluga gróðrarstöð til ræktunar skógarplantna á Fljótsdalshéraði.

Eftirtaldir aðilar lögðu fé til stofnunar Barra hf.:

Framleiðnisjóður - 13,6 miljónir kr. Núverandi eignarhlutur félags skógarbænda á Fljótsdalshéraði. Gert í því skyni að auka nýsköpun og atvinnuuppbyggingu á sauðfjársvæðum. Á þessum tíma var sauðfjárbúskapur í mjög slæmri stöðu á Héraði vegna riðuniðurskurðar.

Ríkissjóður - . Sérstök fjárveiting að upphæð 12 miljónir kr. til Héraðsskóga. Eyrnarmerkt til uppbyggingar Barra hf. Ríkissjóður seldi þessi hlutabréf í ársbyrjun 2004 eftir útboð á vegum Ríkiskaupa.

14,2 miljónir kr komu síðan frá sveitarfélögum, fyrirtækjum og einstaklingum á svæðinu.

Hluthafar eru í dag 127.  Árið 1991 var fyrsta rekstarár félagsins og ræktun fyrstu uppskeru hófst 17. maí það ár. Liðlega helmingur fyrstu uppskeru var seldur í haustgróðursetningu það ár og hinn helmingurinn geymdur til næsta vors. Framleiðslan jókst á næstu árum ekki síst eftir að farið var að rækta tvær uppskerur í gróðurhúsi. Framleiðslan var tæplega 2,2 milljónir plantna á árinu 2005 og aðeins minna árið 2006 vegna affalla sem urðu á nokkrum tegundum. Í september 1998 keypti félagið rekstur Fossvogsstöðvarinnar ehf. Var nafni félagsins breytt í Barri-Fossvogsstöðin hf. Á árinu 2000 var nafninu aftur breytt í Barri h.f. Á þessu tímabili rak fyrirtækið einnig gróðrarstöð í Fossvoginum í Reykjavík. Þessi stöð var áður í eigu Skógræktarfélags Reykjavíkur. Samfara þessu þá eignaðist Skógræktarfélag Reykjavíkur verulegan hlut í félaginu og á í dag 25,4% hlutafjár í Barra hf.

Framkvæmdastjórar félagsins hafa verið þessir á liðnum árum. Einar Gunnarsson, 1991-1993. Jón Kr. Arnarson, 1993-2002. Rúnar Ísleifsson, 2002-2005. Skúli Björnsson, 2005-.

Stjórnarformenn hafa verið þessir: Gísli Guðmundsson, Sveinn Jónsson, Jónas Magnússon, Hilmar Gunnlaugsson, Skúli Björnsson og Björn Ármann Ólafsson.

 
Heimsóknir í dag: 37
Heimsóknir alls: 27640

Viðburðir

September 2010 Október 2010
Su Þr Mi Fi La
Week 35 1 2 3 4
Week 36 5 6 7 8 9 10 11
Week 37 12 13 14 15 16 17 18
Week 38 19 20 21 22 23 24 25
Week 39 26 27 28 29 30