|
|
þriðjudagur, 26 júní 2007 |
|
Hús 2 er risið á Valgerðarstöðum. Lokafrágangur á klæðningu er í gangi, byrjað er að setja upp skyggingarbúnað og rafvirkjar og pípulagningarmenn að hefja sína vinnu.
Heitt vatn komst á Hús 1 í dag og lokafrágangur rafmagns- og símalagna stendur yfir.
Undanfarna daga hefur verið notast við díselrafstöðvar til að knýja búnaðinn í húsinu, en vonandi kemst rafmagn á fyrir helgi.
|
|
|
Sáning langt komin í Húsi 1 |
|
|
|
|
þriðjudagur, 26 júní 2007 |
Í síðustu viku hófst sáning í Húsi 1 á Valgerðarstöðum. Smávægilegir byrjunarörðugleikar töfðu verkið, en nú gengur sáning vel og lýkur vonandi á föstudag.
|
|
|
Nýr Íslandsmeistari í skógarhöggi |
|
|
|
|
laugardagur, 23 júní 2007 |
Skógardagurinn mikli er í dag. Fjöldi fólks lagði leið sína í Hallormsstaðaskóg til að taka þátt í hátíðahöldunum. Íslandsmeistaramótið í skógarhöggi var eins og venjulega einn af hápunktum dagsins. Eftir harða og jafna keppni, stóð Bjarki Sigurðsson, starfsmaður Skógræktar ríkisins á Hallormsstað uppi sem sigurvegari. Alls voru 8 keppendur og keppnin óvenjulega jöfn og spennandi.
Þessi ungi maður sagðist ætla að verða skógarhöggsmaður þegar hann yrði stór. Eplið fellur ekki langt frá eikinni fremur en venjulega því þetta er Þorsteinn Bjarkason, sonur nýkrýnds sigurvegara.
|
|
|
miðvikudagur, 13 júní 2007 |
|
Uppsetning grindar fyrir seinna húsið er á lokastigi.
Í fyrra húsinu er búið að setja vökunarbómuna upp og síðdegis í dag var verið að prófa hana og stilla.
Uppsetning tölvubúnaðar og stýringa fyrir veðurstöð og áburðarblandara er hafin og tenging vatns og rafmagns á næsta leiti.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 1 - 9 af 17 |